Fjóluhvammur 1, 700 Egilsstaðir
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
4 herb.
178 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1992
Brunabótamat
70.050.000
Fasteignamat
54.050.000

Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Fjóluhvammur 1, Fellabæ
Um er að ræða hús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
BÁÐAR EIGNIRNAR Í HÚSINU ERU TIL SÖLU.
Hér er um að ræða íbúð á efri hæð hússins ásamt bílskúrnum.
Hvor íbúð hefur sérinngang og ekki er opið milli hæða.
Efri hæðin er rúmgóð og björt.
Útgengt er á svalir úr stofu.
Svalirnar eru rúmgóðar og ná meðfram 2 hliðum hússins, að sunnan og austanverðu.
Eldhúsið er rúmgott og með nokkuð stórri innréttingu.
Af dyrapalli eru 2 inngangar í íbúðina, annar inn í hefðbundna forstofu en hinn inn í mjög rúmgott og notadrjúgt þvottahús.
Gott geymslupláss er í þvottahúsi og þar er stór og góð innrétting með upphækkun fyrir þvottavél og þurrkara.
Úr þvottahúsinu er lúga upp í geymslurými sem er yfir allri hæðinni.
Baðherbergi uppi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er bæði baðkar og sturtuklefi og nokkuð rúmgóð innrétting.
3 svefnherbergi eru á efri hæð. Fataskápar eru í 2 herbergjum.
Bílskúrinn er 55,3 fermetrar, flísalagður og mjög snyrtilegur.
Snyrting er inn úr bílskúrnum ásamt góðri geymslu.
Ekki er innangengt í bílskúrinn en hann er með 2 góðum bílskúrshurðum og er gönguhurð í annnari.
Hurð með rafdrifnum opnara er á annari bílskúrshurðinni.
Lóð hússins er 952 m². 
Húsið stendur hátt.
Húsið er kynt með hitaveitu.
Heitur pottur er á lóðinni bakvið húsið og fylgir hann þessari íbúð við sölu.
Stórt malarborið bílaplan er framan við húsið.
Eignaskiptasamningur gerir ráð fyrir 2 bílastæðum við hvora íbúð í húsinu.
Garðurinn er gróinn og tiheyrir þessari íbúð að fullu fyrir utan timburverönd sem tilheyrir neðri hæð.
Fjóluhvammur er róleg botnlangagata í fallegu umhverfi.
Stærð íbúðarinnar skv. fasteignaskrá er 122,7 m2 og bílskúrsins 55,3 m2

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.