*** Bókið skoðun í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected] ***Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali og LF-fasteignasala kynna:Mjög gott og vel skipulagt 195 fm. parhús með innbyggðum bílskúr á góðum stað við Furudal 6 í Njarðvík. 4 rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu og hátt til lofts. Glæsilegur ca 100 fm nýlegur sólpallur þar sem gert er ráð fyrir heitum potti. Gólfhiti er í öllu húsinu. Húsið var byggt 2008 en mjög margt hefur verið gert þar og klárað á síðustu 3 árum. Stapaskóli, þar sem er leikskóli og grunnskóli, er í göngufæri. Anddyri og gangur er flísalagt. Fatahengi með geymslu er innaf gangi og eru einnig með flísum á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt. Innfelld ljós með dimmer. Útgengt á mjög stóran og góðan sólpall á 2 hæðum.
Eldhús er í opnu rými við stofu. Falleg nýleg innrétting með hnotuáferð, hvítir efri skápar. Helluborð með innbyggðum gufugleypi. Innbyggð uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð og innbyggður örbylgjuofn. Tvöfaldur ísskápur má fylgja. Innfelld ljós í lofti.
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Speglaskápur með innbyggðri lýsingu. Sturtuklefi, vegghengt klósett, góð innrétting og
handklæðaofn. Útgengt á sólpall. Gólfhiti.
4 mjög rúmgóð svefnherbergi eru í í húsinu. Góðir skápar í öllu nema einu sem er með bráðabirgðaskáp.
Rúmgott
þvottahús, flísalagt í hólf og gólf. Góð geymsla er innaf þvottahúsi. Innangengt í bílskúr.
Innbyggður bílskúr með miklu skápa- og vinnuplássi. Stigi upp á rúmgott
geymsluloft sem liggur yfir öllu húsinu.
Glæsilegur ca 100 fm skjólsæll sólpallur á 2 mismunandi hæðum var byggður 2021/2022. Grasflötur og steypt innkeyrsla við hlið húss. Gert er ráð fyrir heitum potti á sólpallinum.Flísar eru á gólfum í anddyri, fatahengi/geymslu, þvottahúsi og baðherbergi en að öðru leiti afhendist eignin án gólfefna svo kaupendur geta valið þau sjálf.
Þakkantur á húsinu er nýlegur. Svalahurðar út á sólpall eru nýlegar.
Nánari upplýsingar veitir Styrmir Þór Sævarsson löggiltur fasteignasali í síma 846-6568 eða á netfanginu [email protected].