LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
[email protected] kynna:
Leynimelur 9, Stöðvarfirði.Parhúsíbúð á 2 hæðum.
Gengið er inn á efri hæð hússins. Þar er rúmgóð forstofa og snyrting þar til hliðar.
Stofa og eldhús í opnu rými. Nýleg innrétting frá Brúnás. Nýleg tæki.
Efri hæð hússins hefur verið breytt og nýtingin bætt.
Nýleft iðarparket er á gólfi. Hvíttuð eik.
Svefnherbergi var útbúið á efri hæðinni, á því eru dyr út á SV svalir.
Ágætur stigi liggur niður á neðri hæðina þar er langur gangur með dyrum út í garðinn.
Niðri eru 2 góð svefnherbergi, bæði með skápum og annað með dyrum út á sólpall.
Niðri er gott baðherbergi, geymsla og þvottahús.
Stór sólpallur með skjólveggjum er við SV hlið hússins.
Kominn er tími á málningu utanhúss en eitthvað af málninug er til og fylgir með við kaup.
Húsið stendur hátt og á horni og er mjög mikið og fallegt útsýni frá því.
Kominn er tími á ýmsar endurbætur.