Hæðargerði 16 aukaíb seld með fyrirvara , 730 Reyðarfjörður
69.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
7 herb.
294 m2
69.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1977
Brunabótamat
122.550.000
Fasteignamat
65.600.000

LF-fasteignasla/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Hæðargerði 16, Reyðarfirði.
Vandað og vel við haldið einbýlishús með aukaíbúð á neðri hæð.
Efri hæð hússins er í götuhæð. Þar er gengið inn í rúmgóða forstofu. Á aðra hönd er þvottahús og á hina snyrting.
Gólf í forstofu er flísalagt og með gólfhita.
Úr forstofunni er komið inn í stóra og bjarta stofu með miklu útsýni.
Eldhúsið er með borðkrók og U-laga innréttingu. Við hlið eldhússins er lítið búr með góðu hilluplássi,
Við herbergjagang eru í dag 3 svefnherbergi en voru áður 4 og auðvelt er að breyta í sama horf aftur.
Baðherbergið er rúmgott, þar er baðkar og sturta. Flísar á gólfi og veggjum.
Hringstigi var áður niður á neðri hæðina en opinu hefur verið lokað og gerð lítil heimaskrifstofa.
Á neðri hæð er auka-íbúð sem getur gefið leigutekjur og geymslur.
Sér inngangur er í íbúðina á neðri hæðinni.
Íþróttavöllur, leikvöllur og grunnskóli eru í næsta nágrenni og einnig er stutt á leikskólann og í sundlaug og Fjarðabyggðarhöllina.
Rúmgóðar svalir eru á vesturhlið hússins og ná þær fyrir hornið að sunnanverðu.
Bílskúr er sambyggður húsinu að norðanverðu.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.