Strandgata 55, 735 Eskifjörður
27.500.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
4 herb.
117 m2
27.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1959
Brunabótamat
49.950.000
Fasteignamat
19.850.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Strandgata 55, Eskifirði, efri hæð.
3 fasteignir eru í húsinu, 2 íbúðir og rými sem hýsir tæknibúnað fyrir síma og fjarskipti.
Eignarhlutur þessarar íbúðar í húsi og lóð er 25,14%
Gengið er upp nokkrar tröppur frá götu að inngangi í íbúðina.
Komið er inn í ágæta forstofu og þaðan er stigi upp í íbúðina.
Fyrst er komið á rúmgóðan stigapall og til hliðar við hann er búr og einnig er góð geymsla við stigapallinn.
Hurð er inn í íbúðina og þar er komið inn á nokkuð langan gang og er eldhúsið við enda hans.
Í eldhúsinu er nokkuð stór U-laga eldhúsinnrétting og eru núverandi eigendur íbúðarinnar með þvottavél í eldhúsinnréttingunni. Pláss er fyrir eldhúsborð og stóla í eldhúsinu. 2 gluggar eru á eldhúsinu,
Baðherbergið er með baðkari með sturtutækjum.
Svefnherbergin eru 3, 2 ágætlega rúmgóð en 1 er heldur minna.
Stofan er rúmgóð og eru litlar vestursvalir út af henni.
Stofan var áður mun stærri en núverandi eigendur hafa stúkað af rúmgott svefnherbergi í enda hennar. Auðvelt er að færa í fyrra horf sé þess óskað.
Lítil útigeymsla áföst húsinu fylgir íbúðinni.
Lóðin er í óskiptri sameign.
Grunnskóli er í næsta húsi við íbúðina og leiksvæði og sparkvöllur á bakvið húsið.
Matvöruverslun er í næsta nágrenni við húsið.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.