Álfabrekka 7 lækkað verð , 750 Fáskrúðsfjörður
57.800.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
122 m2
57.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
58.750.000
Fasteignamat
27.450.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Álfabrekka 7, Fáskrúðsfirði.
Mjög fallegt og nær algjörlega endurnýjað einbýlishús á einni hæð með góðu aðgengi. Rafmagn hefur ekki verið endurnýjað að öllu leiti en nánast allt annað þar með talið frárennslislagnir og vatnslagnir.
Húsið hefur verið klætt að utan með vandaðri plastklæðningu og þak endurnýjað og skipt um alla glugga og hurðir.
Allar endurbætur fóru fram árin 2022 og 2023
Allar innréttingar og gólfefni er nýlega endurnýjað.
Gólfhiti er í forstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergjum og góðir nýir ofnar í öðrum herbergjum.
Góður geymsluskúr er við húsið og er hann með stórri rafdrifinni hurð með fjarstýringu.
Fallegt hellulagt bílastæði er meðfram allri norðurhlið hússins,
Stór sólpallur með góðum skjólveggjum er vestan við húsið.
Húsið skiptist í rúmgóða forstofu, snyrtingu, stórt eldhús og þvottahús inn úr eldhúsinu, stóra stofu með góðum útsýnisgluggum til suðurs og austurs, herbergjagang með hurð út á sólpallinn og baðherbergi sem er bæði með baðkari og sturtu.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.