Mýrargata 9 með bílskúr , 740 Neskaupstaður
57.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á pöllum
3 herb.
131 m2
57.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1960
Brunabótamat
56.490.000
Fasteignamat
35.100.000

LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali [email protected] kynna:
Mýrargata 9, Neskaupstað. Endaraðhús með bílskúr.
Nær algjörlega endurnýjað endaraðhús á 3 pöllum.
Nýtt eldhús, baðherbergi og gestasnyrting. Ný gólfefni. Nýmálað. Rafmagn og vatns- og frárennslislagnir endurnýjað og er rafmagnstaflan ný. Nýtt vatnsinntak. Nýr hitakútur, ný hitatúpa og nýir ofnar.
Hiti er í gólfum í forstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi.
Ljósleiðari er kominn inn í húsið.
Húsið er frábærlega staðsett, beint fyrir ofan  verkmenntaskólann og svo eru grunnskólinn og leikskólinn þar beint fyrir neðan.
Sjúkrahúsið er svo næsta bygging fyrir utan verkmenntaskólann.
Flott útsýni er frá húsinu.
Stærð íbúðarinnar er 114 fermetrar og að auki fylgir henni 17 fermetra bílskúr.
Rafmagn hefur nýlega verið lagt í bílkskúrinn en hann hefur að öðru leiti ekki verið endurnýjaður.
Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu með flísum á gólfi. Lítil snyrting er við hlið forstofunnar.
3 tröppur eru úr stofunni og upp í rúmgott eldhús með stórri nýrri innréttingu og góðri eyju.   
Rúmgott þvottahús sem einnig getur nýst sem geymsla er við hlið eldhússins. 
Dyr eru úr þvottahúsinu út í bakgarðinn. Þar eru þvottasnúrur.
Ágætur teppalagður stigi er upp á efri hæðina. Vandað teppi er á stiganum og gott undirlag.
Þar eru 2 svefnherbergi, annað með dyrum út á svalir.
Fataherbergi er inn úr stærra herberginu.
Baðherbergið er ný uppgert með góðri sturtu og handklæðaofni. Flísar á gólfi og Fibo plötur á veggjum.
Við stigann er útskot á ganginum sem getur nýst sem vinnuaðstaða fyrir tölvu eða annað. 
Útihurðir og flestir gluggar er nýtt.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.