Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir. löggiltur fasteignasali.
[email protected] kynna:
Hlíðargata 20, Fáskrúðsfirði.Um er að ræða einbýlishús sem núverandi eigendur keyptu í slæmu ástandi en hafa gert miklar endurbætur á.
Húsið er nokkuð veglegt og hafði verið klætt að utan. Stórar timbursvalir höfðu verði byggðar vestan við húsið.
Nýtt þak er komið á húsið, nýtt eldhús og nýtt baðherbergi. Einnig eru gólfefni nýleg og rafmagn og lagnir hefur verið endurnýjað að stórum hluta.
Íbúðin er öll nýlega máluð og ný klænðning í loftum.
Gólfhiti er í húsinu og vönduð gólfefni frá Birgisson.
Innihurðir vantar en dyraop hafa verið breikkuð svo þau passa fyrir staðlaðar hurðir.
3 svefnherbergi eru í húsinu í dag þar sem 2 lítil herbergi voru sameinuð.
Bílskúr og geymsla eru á neðri hæð og eru upprunaleg og frekar hrá en hafa fullt og gott notagildi.
Verið er að leggja lokahönd á drenlögn norðan við húsið.
Það sem á eftir að ljúka í húsinu er að setja nýjar innihurðir og frágangslista í loft.
Eignin er skemmtileg og stendur á flottum útsýnisstað.
Gróin lóð er við húsið.
Bílastæði fyrir 3 bíla er framan við húsið.